« Eigum við að grýta höfnina okkar? | Aðalsíða | Lóðamál »

23. febrúar 2006

Skólamáltíðir

Þorgerður Katrín sagði í dag í utandagskrárumræðum að hún myndi ekki beita sér fyrir fríum skólamáltíðum í framhaldsskólum. Það finnst mér gott hjá henni. Auðvitað er það fráleitt að ríkið eigi að gefa börnum að borða. Foreldrar bera ábyrgð á því að börnum þeirra sé gefið að borða og þeir njóta fjölþættra fríðinda til þess arna. Engu skiptir í því sambandi hvar börn ala manninn á daginn. Vart þarf svo að rökstyðja það ítarlega að sjálfrátt fólk beri ábyrgð sjálft á að halda sjálfu sér á lífi með því að borða.

Gylfi Ólafsson kl. 15:04