« Ekki hlusta á vinstrimenn | Aðalsíða | Stærðin skiptir máli »

9. febrúar 2006

Skelfileg rök fyrir ríkisafskiptum

Í nýjustu ályktun frá Sambandi Ungra Framsóknarmanna er hægt að finna eitt samþjappaðasta samansafn vondra röksemda sem sést hefur á nokkurri síðu íslenskra stjórnmálasamtaka fyrr og síðar. Stór orð en ekki ósönn þar með. En vindum okkur í smáatriðin..

Ályktunin hefst á eftirfarandi orðum:

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á íslensk stjórnvöld að leita leiða til að aðstoða kjörforeldra við ættleiðingar. Í nágrannalöndum okkar eru veittir styrkir til þess að vega á móti miklum kostnaði við ættleiðingar, en enga slíka aðstoð er að fá hér á landi.

Í nágrannalöndum Íslands er hægt að finna dæmi um margt gott og margt vont. Þó er ekkert sem segir að af því að nágrannaríkin reki svona eða hinsegin kerfi, eða veiti fé úr vasa þessa hóps í vasa hins, að þá eigi Íslendingar að gera það sama. Slík röksemd gæti dugað til að rökstyðja hvað sem er, t.d. að íslensk stjórnvöld ættu að leyfa munntóbak aftur (Svíþjóð), kannabisreykingar á þar til gerðum kaffihúsum (Holland), sækja um inngöngu í danska konungsveldið aftur (Grænland), leyfa grindhvaladráp (Færeyjar), lækka skatta á fyrirtæki niður í 0% og koma á flötu tekjuskattskerfi fyrir einstaklinga (Eistland), og svona má lengi telja. Þessi röksemd er með öllu ómarktæk. Næsta takk!

Að ættleiða barn frá útlöndum kostar mikla fjármuni. Þeir sem eignast börn með hefðbundnum hætti hér á landi fá margvíslega þjónustu endurgjaldslaust og því er eðlilegt að létt verði undir með væntanlegum kjörforeldrum sem láta sig dreyma um að eignast börn og vilja láta þann draum sinn verða að veruleika.

Að sumir njóti launa og afraksturs af vinnu annarra í boði ríkisins réttlætir ekki að aðrir ættu að njóta sömu kjara. Hvers vegna á að skattleggja alla - drýgja tekur allra - svo að sumir geti flotið upp á skýi forréttinda? Orðið endurgjaldslaust er reyndar réttnefni í ályktunni og til merkis um að orðið ókeypis sé loks á undanhaldi í allri umræðu um ríkisafskipti.

En að eitt sé niðurgreitt þýði að annað eigi að vera það líka hefur líka snjóboltaáhrif í för með sér. Nú fær sjónskert fólk hvorki niðurgreiðslur né þjónustu eða aðstoð frá ríkinu (að mér vitandi). Margir eiga þann draum heitastan að fara í aðgerð sem læknar sjónskortinn með leysigeisla. En nú er ríkinu alveg sama um það. Hver er afleiðingin? Stórkostleg samkeppni, batnandi þjónusta, lækkandi verð og sívaxandi ánægja viðskiptavina hinna frjálsu augnlækna. En hvað vilja Framsóknarmenn gera? Ætli þeir leggi ekki til að af því að heyrnaskert fólk fær fjárstuðning með hjálp skattkerfisins, að þess vegna eigi sjónskertir að njóta sömu forréttinda?

Skorar stjórn SUF því á ríkisstjórn Íslands að bregðast myndarlega við réttmætum ábendingum kjörforeldra og renna enn frekari stoðum undir þá fjölskyldustefnu sem rekin er á vegum ríkisstjórnarinnar, þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi.

Fjölskyldan er alls ekki í fyrirrúmi í hinu þéttriðna neti bóta hér og skatta þar. Barnafjölskyldur koma síst vel út úr því að vera fyrst skattlagðar til þess eins að geta sótt um allskyns bætur og greiðslur til að ná töpuðum tekjum til baka. Fátækar fjölskyldur, sem er beinlínis haldið barnlausum með eilífu kroppi ríkisvaldsins, geta ekki vonast til að fá að standa á eigin fótum, því kerfið gerir ráð fyrir að allir nema sumir þurfi hjálp, í stað þess að reikna með sjálfsbjargarviðleitni sem dugir flestum en ekki sumum.

Geir Ágústsson kl. 17:11