« Skólamáltíðir | Aðalsíða | Kapítalisma fyrir þá sjúku! »

24. febrúar 2006

Lóðamál

Vihjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins ræddu um lóðamál í Reykjavík í sjónvarpinu fyrir skömmu.

Ef ég skil Vilhjálm rétt þá vill hann ekki selja lóðir á markaðsverði af því að hann heldur að það sé ekki neinn markaður til staðar fyrir lóðir af því að borgin hafi einokunarstöðu á lóðum. Þetta er misskilningur. Ef þeir sem vilja eignast einbýlishús geta ekki fengið lóð til að byggja sjálfir þá verða þeir að snúa sér að því að kaupa tilbúið hús. Mjög hátt verð á lóðum myndi valda því að fólk kysi frekar tilbúin hús. Mjög lágt verð á lóðum veldur því að fólk sækist eftir lóðum í meira mæli en en tilbúnum húsum. Lóðir undir einbýlishús og einbýlishús með lóð eru því ólíkar vörur á sama markaði. Þetta skýrist best á því að ef offramboð væri á einbýlishúsum myndi borgin ekki geta haldið sama háa lóðaverðinu í skjóli einokunnar. Það sama gerist ef offramboð er á lóðum, þá lækkar fasteignaverð.

Ég hallast því að því að Alfreð haft rétt fyrir sér í því að eðlilegast væri að selja lóðir hæstbjóðanda. Að selja lóðir á lægra verði jafngildir því að færa fjármuni úr borgarsjóði og í vasa þeirra sem vilja endilega byggja sér hús. Ef færa á einhverja fjármuni úr borgarsjóði á að gera það með því að skila þeim til eigenda sinna í formi lægra útsvars, en útsvarið er nú í hámarki í Reykjavík, þökk sé R-listanum.

Oddgeir Einarsson kl. 11:00