« Frjálslegur samanburður við Danmörku | Aðalsíða | Um aðgerðir hins opinbera »

3. febrúar 2006

Íslenska ríkið er ekki umburðarlynt gagnvart tjáningu um trúarbrögð

Það kom heldur flatt upp á íbúa Vestur Evrópu að teikninmyndir af spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum danska skyldu vekja upp svo sterk viðbrögð meðal múslima og raun bar vitni. Brennandi fánar, fjöldamótmæli, viðskiptasniðganga, hótanir um sjálfsmorðsárásir og almennur berseksgangur eru dæmi um viðbrögðin.

Að hótunum um ofbeldi undanskildum eru aðgerðir múslimanna að mestu leyti réttmætar. Þannig felst t.d. ekkert ofbeldi í því að kaupa ekki vöru af dönskum seljanda.

Sjálft ríkisvaldið ber hins vegar enga virðingu fyrir tjáningarfrelsinu einmitt þegar kemur að trúarbrögðum. Það refsar fyrir guðlast. Með því að refsa er ríkið að beita einkarétti sínum til að beita ofbeldi. Íslenska ríkið er því síst umburðarlyndara en þeir múslimar sem mótmæla teiknimyndum af Múhammeð.

Lítum aðeins á hvað hin umburðarlyndu hegningarlög hafa að segja um meint tjáningarfrelsi sem mikið er talað um í dag. Eftirfarandi segir í 125. gr. laganna:

Hver, sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum

Hvort ætli lýsi nú meira umburðarlyndi, að loka manneskju í dyflissu í þrjá mánuði eða að kaupa ekki tilteknar vörur af samlöndum hennar?

Oddgeir Einarsson kl. 14:56