« Tjáningarfrelsið | Aðalsíða | Eigum við að grýta höfnina okkar? »

19. febrúar 2006

Guantanamo

Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, lýsti því yfir í Silfri Egils á sunnudaginn að stjórnvöld ættu að skora á bandaríkjamenn að loka Guantanamo búðunum á Kúbu.

Ef til vill er óþarfi að hvetja þá til að loka búðunum. En það hlýtur að vera skýlaus krafa að þeir fangar sem þar dvelja njóti þess að fá að svara fyrir þær sakir sem þeir eru bornir.

Frjálshyggjufélagið ályktaði um þetta mál í maí 2004 og er það í fyrsta og eina skipti sem félagið hefur ályktað um utanríkismál.

Mannréttindabrotum mótmælt

Frjálshyggjufélagið hvetur ríkisstjórn Íslands til að mótmæla mannréttindabrotum í stríðinu gegn hryðjuverkum. Þær þjóðir sem berjast gegn hryðjuverkum verða að sýna gott fordæmi og virða mannréttindi í hvívetna. Sigur vinnst ekki í baráttu gegn hryðjuverkum nema andstæðingar þeirra sýni skýrlega siðferðislega yfirburði sína yfir hryðjuverkamönnunum.

Meðferð fanga sem vistaðir eru í herstöð Bandaríkjamanna við Guantanomo-flóa á Kúbu er óréttlætanleg. Veita verður föngum þar réttláta málsmeðferð, líkt og öðrum sem sakaðir eru um glæpi. Ennfremur er dauðarefsing óréttlætanleg í þessum málum sem öðrum og ber að leggjast gegn því að henni verði beitt.

Sævar Guðmundsson kl. 23:50