« Biskup og stjórnsýslulög | Aðalsíða | Íslenska ríkið er ekki umburðarlynt gagnvart tjáningu um trúarbrögð »

1. febrúar 2006

Frjálslegur samanburður við Danmörku

Vísitala efnahagslegs frelsis 2006 er samanburður á afskiptaleysi ríkisvaldsins á milli flestra landa í heiminum. Á heimsmælikvarða kemur Ísland alveg gríðarlega vel út, og er fremst í flokki efnahagslega frjálsra landa í heiminum. Danmörk kemst eitt skandinavískra landa nálægt því að vera með tærnar þar sem Ísland er með hælana. Hið mikla efnahagslega frelsi, þ.e.a.s. hin mikla fjarvera ríkisins á hinum frjálsa markaði, hefur vitaskuld fjölmargar jákvæðar afleiðingar í för með sér, t.d. velmegun, framfarir og frumkvæði, og þyrfti að berja sig ansi duglega í höfuðið til að geta afneitað hinum gapandi sönnunum um það (jafnvel í fjarveru mældra hagstærða).

En hvernig stendur á því að alræmt sósíalískt land eins og Danmörk, með spikfeitan opinberan geira, fjallháa skatta og félagslegt bótakerfi sem dekkar nánast leti er að mælast efnahagslega frjálst og jafnvel næstum því eins frjálst og hið ofvirka og vinnusjúka Ísland? Ástæðan er sú að efnahagslegt frelsi tekur fyrir marga ólíka þætti ríkisafskiptaleysis. Ísland skorar hátt þegar kemur að skattpíningu hins opinbera og almennum fjárhagslegum umsvifum þess. Á þennan mælikvarða sýna Danir umtalssvert svigrúm til framfara, svo ekki sé tekið dýpra í árina. Á hinn bóginn er Íslandi ekki gefin eins há einkunn og Danmörk fyrir frelsi til að versla, og hið íslenska regluverk og hversu mikil erlend fjárfesting fær lausan tauminn á Íslandi draga Ísland sömuleiðis niður.

Ísland er vissulega frjálst land, en getur gert miklu betur. Íslendinga þurfa að tryggja að þeir hangi alltaf sem lengst til hægri á þessari mynd svo þeir geti einnig hangið sem efst.

Mælikvarði efnahagslegs frelsis er ekki fullkominn frekar en aðrar samansafnanir á tölum og gögnum ásamt örlítilli skvettu af túlkunum. Ekkert stendur hreinum rökum fyrir frelsi framar. Hins vegar er mjög sannfærandi að sjá hvað virðist felast í afskiptaleysi hins opinbera af frjálsum markaði, og í öllu falli er erfitt að segja að kapítalismi hafi ekki náð að sanna sig bæði í orði og í verki.

Geir Ágústsson kl. 17:38