« Til pólitíska rétttrúnaðarsafnaðarins | Aðalsíða | Skelfileg rök fyrir ríkisafskiptum »
8. febrúar 2006
Ekki hlusta á vinstrimenn
Ríkum Vesturlandabúum líður sjaldan betur en þegar þeir geta haft slæma samvisku yfir einhverju. Ekki er verra ef slæma samviskan er hreinlega til komin vegna lífsstíls okkar eins og hann leggur sig. Okkur er talin trú um að fátækt annars fólks hljóti að vera ríkidæmi okkar að kenna. Okkur er sagt að af því við getum keyrt um í bílum og búið í hlýju húsnæði þá muni loftslag Jarðar taka heljarstökk inn í ýmist miklar hitasveiflur eða mikil kuldaskeið, og valda bæði hungursneyðum og farsóttum.
Sem betur fer er þetta ekki rétt. Ekki er rúm til að útskýra það nánar hér, en lífsstíll okkar og eldsneytisbrennsla er ekki að ögra loftslagi plánetu okkar. Vinstrimenn trúa því hins vegar í einlægni að ef þeir fá að skipuleggja orkunotkun okkar (auk þess að stjórna tekjum okkar, vímuefnanotkun og skoðunum á kvenfólki og blökkumönnum) þá geti þeir gert gagn. Marx, Lenín og Castró eiga allir skylda hugsanavillu sameiginlega. Ekki kaupa boðskapinn. Vertu þú sjálf(ur), hættu að hafa samviskubit, beittu raunsæi frekar en tilfinningarökum og þá mun þér og öðrum vegnast best.
Birtist áður í DV 7. febrúar sl.
Geir Ágústsson kl. 18:25