« Stærðin skiptir máli | Aðalsíða | Tjáningarfrelsið »

15. febrúar 2006

Af tjáningarfrelsi og ábyrgð

Ég lenti í viðræðum við mjög gáfað fólk á bar um daginn.

Við fórum að ræða um teiknimyndamálið og tjáningarfrelsið. Mér kom á óvart að þetta gáfaða fólk (athugið það að ég kalla þetta fólk ekki gáfað í kaldhæðni) taldi allt að þeir sem birtu teiknimyndirnar hafi borið ábyrgð á ólátunum í sumum múslimum.

Hvað nú ef feministar yrðu enn reiðari vegna B&B og færu að fremja skemmdarverk í stærri stíl en að líma límmiða á blöðin? Hvað t.d. ef útgefendur og seljendur blaðanna vissu að feministarnir myndu brjóta allt og bramla vegna blaðanna? Er þá e-ð rangt við að gefa út blöðin?

Og hvað með mig sem þoli ekki Gestgjafann, Hús og hýbýli og hvað þá Vikuna. Væri það rangt að gefa út slík blöð bara af því að ég yrði trítilóður?

Ef A miðar byssu á B og hótar að skjóta hann ef C lætur í ljós tiltekna skoðun, er þá rangt hjá C að opinbera skoðun sína?

Tjáningarfrelsið er ekki klisja og það má aldrei ætlast til að einhver noti það ekki bara til þess að færa ábyrgðina á ofbeldisverkum frá ofbeldismönnum og yfir á friðsamlegt fólk.

Sama hversu gáfaður sem maður er.

Oddgeir Einarsson kl. 17:48