« Skondin túlkun á mćtingu | Ađalsíđa | Tungumálafasismi »
21. janúar 2006
Um málfrelsiđ góđa
Oft er sagt ađ á Íslandi ríki málfrelsi. Viđ hreykjum okkur af ţessu. Viđ bendum á frjálslynt ákvćđi í stjórnarskránni ţar sem tjáningarfrelsi í orđum og á prenti er variđ. Á Íslandi ríkir hins vegar ekki málfrelsi. Á eftir stjórnarskrárákvćđinu sem kveđur á um frelsi til tjáningar kemur ákvćđi sem kveđur á um skerđingu ţess frelsis, m.a. í nafni furđufyrirbćris sem nefnist „allsherjarregla“, og minnir helst á eitthvađ sem forsvarsmenn Ţriđja ríkisins hefđu geta látiđ sér detta í hug.
Hvađ gerist t.d. ef mér dytti í hug ađ kaupa 30 sekúndur af sjónvarpsútsendingu og segja frá nýja og frábćra vodkanum í Vínverslun Alţingis? Hvađ ef ég segđi ađ ilmandi tóbaksreykur vćri ekki bara fíkn og heilsuspillir, heldur einnig ánćgjuvaldur og félagsstyrkjandi međal? Hvađ ef mér dytti nú í hug ađ ferđast til svörtustu Afríku, mynda mér einsleita en jafnframt einlćga skođun á hegđun og atferli innfćddra, og segja svo frá henni á ákveđinn og e.t.v. harđorđan hátt í íslenskum prent- eđa útsendingarmiđli?
Á međan Alţingismenn kalla hvern annan ókvćđisorđum á hinni virđulegu löggjafarsamkundu Íslendinga er saklausum borgurum hótađ eignatöku og frelsissviptingu ef ţeir tjá sig út fyrir ramma ţess sem kallast „allsherjarregla“. Er ţetta málfrelsi?
Birtist áđur í DV 19. janúar 2005
Geir Ágústsson kl. 14:22