« Samanburður við útlönd | Aðalsíða | Álitsgjafar vinstrisins/NFS »
2. janúar 2006
Ofurlaun
Ágúst Ólafur Ágústsson var spurður áðan í Kastljósi hvað væru eðlileg laun stjórnenda. Ágústi fannst þær upphæðir sem fyrrum stjórnendur FL Group fengu ekki eðlilegar, en auðvitað á að borga stjórnendum vel sagði hann.
Ég spyr, er ekki eðlilegast að þeir sem borga viðkomandi laun ákveði það? Ef þessir litlu hluthafar sem fá engu ráðið eru óánægðir með launakjör stjórnenda þá geta þeir einfaldlega selt hlut sinn. En svo er eitthvað sem segir mér að þeir sem ráða yfir meirihluta í fyrirtækjum þyki jafn vænt um fé sitt og þeir sem ráða yfir litlum hlut. Báðir fjárfesta í von um góða ávöxtun og ef mig minnir rétt hefur FL Group gengið ágætlega að undanförnu. Getur verið að launasamningar stjórnenda hafi haft einhver áhrif á gengi fyrirtækisins? Svo má vel vera að þessi laun sem stjórnendur eru að fá vegna starfsloka eða árangurs, séu of há. Það er þá vinnuveitandinn sem tapar á því.
Hvað myndi Ágúst segja ef Arnaldur Indriðason slægi í gegn erlendis og seldi gríðarlega á fimm mánaða skeiði og hagnaðist um 130 milljónir króna? Ekki eðlilegt?
Fannar Jónsson kl. 20:46