« Álitsgjafar vinstrisins/NFS | Aðalsíða | Að setja hámark á "ofurlaun" »
9. janúar 2006
Kosningar framundan
Nú er greinilegt að kosningar eru framundan í sveitafélögum landsins. Þetta veldur mismunandi viðbrögðum hjá sveitastjórnum landsins. Sumar gefa eftir fjárþörf sína með því að lækka útsvar eða ýmis gjöld á íbúa sína. Aðrar henda pening í átt að háværustu þrýstihópunum og vona að þeir og aðrir þegi. Ljóst er að fyrri aðferðin er mun betri þegar til lengri tíma er litið. Þeir sem beita þeirri aðferð að borga fyrir þögn eru ekki að lækna nein mein eða eyða deilumálum heldur plástra grundvallargalla á opinberri stjórnsýslu. Hann er sá að hið opinbera er hvorki neytenda- né markaðsknúið fyrirbæri heldur agatæki og samfélagsmótari.
Leikskólakennarar í Reykjavík þegja kannski ef þeir fá stærri hluta af launum annarra í sína vasa rétt fyrir kosningar. Framtíðarlausn á launamálum leikskólakennara er hins vegar sú sama og í öðrum atvinnugreinum í harðri samkeppni um vinnuafl, þ.e. að gera leikskóla háða ánægju viðskiptavina sinna en ekki aðgangi að biðstofu borgarstjóra. Meira að segja sósíalistarnir í Danmörku hafa áttað sig á því að einstaklingsmiðuð launakjör eru leiðin til árangurs þótt rekstrarforminu sé að öðru leyti haldið í gíslingu [hins] opinbera. Íslendingar hafa engu ástæðu til að vera kaþólskari en páfinn þegar kemur að tröllatrú á stjórnmálamönnum og vantrú á stjórnendum frjálsra fyrirtækja.
Birtist áður í DV í seinustu viku.
Geir Ágústsson kl. 08:45