« Tungumálafasismi | Aðalsíða | Réttindi eða forréttindi? »

24. janúar 2006

Er uppsagna að vænta hjá hinu opinbera?

Tekið úr frétt mbl.is:

Forsætisráðuneytið er að hleypa af stokkunum nýju verkefni er nefnist Ísland.is. Það felst í því að koma upp einni þjónustuveitu sem hefur það að markmiði að auðvelda aðgengi að allri opinberri þjónustu.

Þar sem það er mögulegt, á notandinn að geta afgreitt sig sjálfur og hann á ekki að þurfa að vita fyrirfram hvaða stofnun veitir þá þjónustu sem hann þarf á að halda.

Þetta er gott framtak og þarft. Flest ef ekki öll stærri þjónustufyrirtæki á Íslandi hafa fyrir löngu tekið ýmis konar sjálfsafgreiðslu og upplýsingaveitingu upp á rafrænu formi enda er til mikils að vinna að geta veitt góða þjónustu á aðgengilegan hátt án þess að kosta of miklu til í starfsmannahaldi. Það að ríkið sé svolítið seint að átta sig er hvorki nýtt né óvænt.

En eins og með önnur þjónustufyrirtæki sem eru að leitast við að straumlínulaga rekstur sinn hlýtur maður að spurja sig að einu núna: Koma uppsagnir hjá hinu opinbera til með að fylgja í kjölfar þess að nú er hægt að draga saman á upplýsingaveitu- og afgreiðslusviðinu? Að vísu vita allir svarið við þessari spurningu, sem er neitandi. Ríkið segir aldrei upp starfsmönnum sínum sama hvað gengur á, nema e.t.v. óbeint með því að einkavæða og bjóða út heilu og hálfu einingar ríkisrekstrarins.

Og er það ekki umhugsunarvert?

Geir Ágústsson kl. 16:07