« Réttindi eða forréttindi? | Aðalsíða | Frjálslegur samanburður við Danmörku »

29. janúar 2006

Biskup og stjórnsýslulög

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Karl Sigurbjörnsson, biskup, fyrir að brjóta stjórnsýslulög við ráðningu prests í London. Hann hafði ekki sama hátt á ráðningunni og gert er ráð fyrir í stjórnsýslulögum, þó að hann virðist hafa reynt að hátta ráðningunni með sanngjörnum hætti.

En bíðum nú við. Af hverju getur biskup ekki ráðið þann sem hann vill, með þeim hætti sem hann kýs? Jú, hann er að ráða opinberan starfsmann. Prestar kirkjunnar eru ekki eins og klerkar í öðrum söfnuðum, þeir eru opinberir klerkar - klerkar ríkisins.

Stjórnmálamenn ættu að gera kirkjunni og skattgreiðendum greiða og skilja algerlega á milli kirkju og ríkis.

Sævar Guðmundsson kl. 12:10