« 365 ættu að hugsa sig um | Aðalsíða | Skondin túlkun á mætingu »

11. janúar 2006

Áskorun til 365

Deiglan fór af stað með rafræna undirskriftasöfnun undir áskorun til blaðamanna, ritstjórnar og útgefenda DV. Farið er fram á að vinnubrögð blaðsins verði endurskoðuð og það axli svokallaða samfélagslega ábyrgð. Auðvitað er svona undirskriftasöfnun til lítils og ekki besta leiðin til að senda skilaboð um hvernig blaðið á að reka. Bestu skilaboðin eru að kaupa hvorki blaðið né lesa það. En hver veit, kannski mun áskorunin hafa áhrif á 365. Hvet fólk til að skrifa undir.

Undirskriftasöfnun Deiglunnar

Sævar Guðmundsson kl. 14:56