« Kosningar framundan | Aðalsíða | 365 ættu að hugsa sig um »
9. janúar 2006
Að setja hámark á "ofurlaun"
Þessa dagana ræða menn laun og greiðslur til stjórnenda fyrirtækja. Gott og vel. Umræða um slíkt er mikilvæg til þess að finna rétt verð á markaði. En það er fráleitt að ræða þau mál á þeim nótum að verð sem fyrirtæki greiða, í þessu tilfelli til æðstu stjórnenda fyrirtækja, sé of hátt og því þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða. Það er eins og menn geti aldrei lært að það er ekki hægt að fikta í verðlagningu á markaði án þess að valda skaða.
Segjum sem svo að stjórnmálamenn setji eitthvað hámark á greiðslur til stjórnenda. Hvað gerist þá? Jú, það verður til skortur. Búast menn við að önnur lögmál gildi um stjórnendamarkað en aðra markaði? Hámarksverð leiðir alltaf til skorts á vöru, sé það lægra en jafnvægisverð. Ef menn mega ekki borga seljanda vöru eða þjónustu jafnvægisverð, þá verður einfaldlega minna um seljendur. Í þessu tilviki verður minna um hæfa stjórnendur, þó að eflaust verði alltaf hægt að manna störfin. En besta fólkið fæst ekki.

Sævar Guðmundsson kl. 11:47