« Að setja hámark á "ofurlaun" | Aðalsíða | Áskorun til 365 »
10. janúar 2006
365 ættu að hugsa sig um
Í dag svipti maður sig lífi í kjölfar umfjöllunar DV um hann. Maðurinn sem um ræðir var sakaður um kynferðisafbrot. Ekki var búið að fjalla um ásakanirnar fyrir dómstólum, og því alls ekki víst að þær hafi verið á rökum reistar. Þrátt fyrir að sekt mannsins hafi ekki verið sönnuð, voru þessar ásakanir birtar ásamt nafni og mynd mannsins á forsíðu DV. Þessi vinnubrögð DV eru auðvitað ekki ný af nálinni. Nú þegar DV hefur drifið mann til sjálfsmorðs hljóta eigendur og stjórnendur 365 prentmiðla að velta fyrir sér hvort rétt sé að halda blaðinu úti með þeim hætti sem nú er gert.
Sævar Guðmundsson
fyrrv. blaðamaður á DV (til mjög skamms tíma)
Sævar Guðmundsson kl. 20:28