« Verðum við kröfum um samneyslu | Aðalsíða | Múrari mælir með frelsi »

3. desember 2005

Velferðarsamfélagið

Fréttamenn eru duglegir að flytja okkur fréttir af því sem miður fer í samfélaginu, og krefja stjórnmálamenn úrræða. Eitt af því sem hefur verið nefnt upp á síðkastið er aðbúnaður aldraðra og heimilislaust fólk. Öldruðum er troðið inn á öldrunarstofnanir við óviðunandi aðstæður og heimilislausir mæna göturnar.

Maður spyr sig af hverju hlutir á borð við þetta eru ekki í lagi í samfélagi sem sósíalistar allra flokka kalla velferðarsamfélag. Getur verið að stjórnmálamenn séu of uppteknir af næstu stóriðjuframkvæmd, milljarða tónlistarhúsi og annarri taumlausri eyðslu?

Kannski ættu stjórnmálamenn að taka að sér færri verkefni og sinna þá þeim öldruðu og heimilislausu.

Sævar Guðmundsson kl. 13:57