« Af vestrænum áhrifum | Aðalsíða | Verðum við kröfum um samneyslu »

2. desember 2005

Verkefnalausi stjórnmálamaðurinn

Hefur einhver heyrt um uppsagnir hjá hinu opinbera sem komu í kjölfar verkefnaskorts hjá opinberri stofnun eða fyrirtæki? Líklega ekki. Opinberir starfsmenn, og þá sérstaklega stjórnmálamenn, þjást aldrei af verkefnaskorti. Oftar en ekki segjast þeir vera svo önnum kafnir að þeir verði hreinlega að fá liðsauka í formi fleiri starfsmanna eða aukins ránsfengs úr vösum skattgreiðenda.

Er enginn undrandi á því að aldrei þurfi að segja upp hjá hinu opinbera, hvort sem góðæri eða hallæri ríkir í hagkerfinu? Hvernig stendur á því að frjáls fyrirtæki þurfa sífellt að aðlagast breyttum aðstæðum með ráðningum eða uppsögnum frá ári til árs eða jafnvel degi til dags, en fjöldi opinberra starfsmanna heldur alltaf áfram að vaxa og verkefnum þeirra heldur alltaf áfram að fjölga? Er vinna opinberra starfsmanna undantekningalaust svo ómissandi að ekkert geti grafið undan mikilvægi hennar eða þörf? Svo mætti ætla, og á sama tíma virðast engin opinber gæluverkefni nokkurn tímann hlaupa skeið sitt á enda.

Kynin munu alltaf vera ójöfn, samkeppni verður alltaf of lítil og byggðaþróunin verður alltaf vandamál því á þessum vandamálum byggja margir opinberir starfsmenn lífsviðurværi sitt, og þar við situr.

Birsti í DV í dag, 2. desember 2005

Geir Ágústsson kl. 09:04