« Gleðilega hátíð! | Aðalsíða | Ofurlaun »

28. desember 2005

Samanburður við útlönd

Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar „Landspítali-háskólasjúkrahús. Árangur 1999–2004“ kemur LSH ágætlega út úr samanburði við átta bresk sjúkrahús þegar litið er til afkasta og gæða. Gott og vel. Það mætti reyndar fylgja sögunni að breska heilbrigðiskerfið er eitt það versta sem Vesturlönd hafa upp á að bjóða (sjá t.d. nýlega grein úr The Spectator). Maður veltir fyrir sér hvers vegna við veljum að bera okkur saman við land þar sem líkur á að lifa af alvarlegan sjúkdóm eru með lægsta móti?

Valur Einarsson kl. 12:27