« Áhyggjur Ástu | Aðalsíða | Árétting »
6. desember 2005
Saklausum fórnað fyrir saklausa
Oft og iðulega kemur fyrir að fólks sé haft að rangri sök um að brjóta lög vegna þess að ýmis atvik benda til þess að viðkomandi hafi framið ólögmætan verknað. Þess vegna hafa vesturlönd borið gæfu til þess að veita öllum sakborningum rétt til að láta verjanda tala þeirra máli og færa rök fyrir sýknu og láta óhlutdræga dómstóla skera úr um hvort sekt sé sönnuð. Þetta fyrirkomulag hefur komið í veg fyrir að fjölmörgum saklausum einstaklingum sé refsað af ríkisvaldinu. Þetta er hið hefðbundna dómskerfi.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig í gær um meint leynifangelsi bandarískra stjórnvalda í fyrrum austantjaldslöndum á eftirfarandi hátt:
Hryðjuverkamenn á 21. öldinni eiga ekki heima inni í hefðbundnu dómskerfi
Nú dylst það engum að hryðjuverk eru enginn smá glæpur og þeir sem þau fremja eiga flest vont skilið. Vandamálið er bara að það er a.m.k. meiri vissa fyrir hendi um hver sé hryðjuverkamaður ef hinir hefðbundnu dómstólar hafa fjallað um mál viðkomandi. Hvað með þann mann sem bandaríski herinn eða CIA hefur lokað inni í dyflissu og æpir „ég er saklaus?“. Hver ætlar að svara því hvort hann eigi heima inni í hefðbundnu dómskerfi?
Sú spurning sem almenningur og stjórnmálamenn þurfa að takast á við í fullri hreinskilni er ekki auðveld; Er réttlætanlegt að taka meðvitaða ákvörðun um að svipta ákveðinn hóp saklauss fólks frelsinu til þess að koma í veg fyrir glæpi einhverra annarra?
Oddgeir Einarsson kl. 08:35