« Velferðarsamfélagið | Aðalsíða | Minni á Jólahvað »

4. desember 2005

Múrari mælir með frelsi

Sverrir Jakobssons skrifaði ágætis grein undir fyrirsögninni „Fjölskyldan og ríkið“ sem birt var í Fréttablaðinu og á Múrnum í gær. Í greininni er gagnrýnd mismunum einstaklinga eftir því hvernig fjölskyldum þeir tilheyra, þ.e. hvort fólk eigi einn eða fleiri maka. Sverrir tekur sér stöðu með frjálshyggjumönnum í þessu máli. Hann virðir fullkomlega frelsi einstaklingsins til að ráðstafa lífi sínu burtstéð hvort öðrum finnist slík ráðstöfun heimskuleg, ógeðsleg, hættuleg eða ósiðleg og segir m.a.:

Grundvöllur hjúskapar ætti að fyrst og fremst að vera gagnkvæmt samþykki lögráða einstaklinga, hverjir og hversu margir sem þeir annars eru. Samþykki ríkisins ætti ekki að vera nauðsynleg forsenda.

Ofangreind frjálshyggjurök eiga við um allt sem einstaklingurinn gerir en ekki bara þegar hann velur sér lífsförunauta. Samþykki er lykilatriði hér. Er þá vitanlega átt við samþykki í hefðbundnum skilningi sem ekki er fengið með ofbeldi. Ef enginn er neyddur til þess arna er rangt hjá ríkinu eða öðrum að grípa inn í. Ef vilji fólks er á annað borð virtur skiptir engu máli hvað það er sem einstaklingarnir hafa samþykkt að gera.

Þess vegna ætti Sverrir að viðurkenna rétt fólks til að búa saman, stunda kynlíf gegn greiðslu, veðja við hvert annað, dansa fyrir hvert annað á hvern þann máta sem það lystir og svo mætti endalaust telja áfram. Sömu grunnrök eiga við í öllum tilfellum.

Oddgeir Einarsson kl. 14:00