« Árétting | Aðalsíða | Ábyrgð í efnahagsmálum »

9. desember 2005

Þjóðverjar búa sig undir heimsmeistarakeppni

Á næsta ári halda Þjóðverjar heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu. Í ljósi þess að áætlað er að þrjár milljónir fótboltaáhugamanna muni leita þjónustu vændiskvenna á meðan keppninni stendur, og tugir þúsunda vændiskvenna muni streyma inn í landið til að svara eftirspurninni hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að fjölga vændishúsum.

Sjónarmið yfirvalda er að draga úr neikvæðum afleiðingum vændis, enda sé vonlaust að koma í veg fyrir það. Með því að leyfa vændi og rekstur sérstakra vændishúsa, telja yfirvöld sig geta dregið úr mansali, nauðungarvændi, milligöngu glæpasamtaka og undirheimastarfsemi.

Vændishúsin virka þannig að kaupendur vændis greiða inngangseyti inn í húsið. Þegar þar er komið geta þeir gert samomulag við vændiskonu, sem hefur einnig greitt aðgangseyri inn í vændishúsið. Vændiskonan hirðir svo allan ágóða af viðskiptum sínum. Til að hafa aðgang að vændishúsinu þarf vændiskonan að sýna fram á að hún hafi rétt á að starfa í Evrópusambandinu og jafnframt þarf hún að telja til skatts. Þannig er nánast útilokað að vændiskonurnar séu gerðar út af glæpamönnum sem jafnvel neyða þær til starfa og selja þær eins og hverja aðra vöru.

Með þessari aðferð er hægt að minnka, og vonandi koma alfarið í veg fyrir mansal og hverskonar nauðung og ofbeldi sem vill oft fylgja vændisiðnaðnum. Það hljóta allir að sjá að hefðbundnar aðferðir sem fela í sér bann og refsingar, hvort sem það er á kaupanda eða seljanda, hafa ekki virkað og munu ekki virka. Sé þessari aðferð beitt má einblína á glæpamenn sem standa í nútíma þrælahaldi.

En auðvitað dettur femínistum ekki í hug að fara þessa leið, þrátt fyrir að hún skili betri niðurstöðu fyrir alla. Femínistar líta svo á að fólk megi alls ekki semja um kynlíf gegn greiðslu, og þá gildir einu hvort það er gert með vilja tveggja fullorðinna einstaklinga eða á milli þrælahaldara og kaupanda. Þetta er lagt að jöfnu og vitleysan heldur áfram.

Sævar Guðmundsson kl. 07:04