« Saklausum fórnað fyrir saklausa | Aðalsíða | Þjóðverjar búa sig undir heimsmeistarakeppni »
7. desember 2005
Árétting
Tvö orðatiltæki eru gjarnan á vörum þeirra sem hafa ekkert á móti velferð mannkyns, frið á jörð, hreinu umhverfi og nóg af menntun, læknisþjónustu og stuðningi til þeirra sem lenda í óyfirstíganlegum hremmingum í lífinu:
Wealthier is healthier.
Richer is cleaner.
Þetta segir sig sjálft: Íbúar ríkra landa hafa meiri áhuga á umhverfisvernd en sveltandi íbúar þróunarríkjanna sem hafa næstu máltíð og þak yfir höfuðið efst í huga. Íbúar ríkra landa hafa aðgang að fullkomnustu lyfjum og bestu læknisþjónustunni og fjármunina til að tryggja að framþróun og tækninýjungar haldi áfram að bæta hið góða. Íbúar fátækra landa geta að sjálfsögðu vonað að brauðmolar hrökkvi af nægtarborði kapítalismans í formi neyðarsendinga og átaksverkefna en á heildina litið þurfa þeir frekar að hafa áhyggjur af byssukúlu í kviðinn en krabbameini, Alzheimer og öðrum sjúkdómum sem íbúar velmegandi samfélagi hafa helstar áhyggjur af. Capitalism heals, socialism kills er ágæt samantekt á þeim raunveruleika.
Geir Ágústsson kl. 13:10