« Minni á Jólahvað | Aðalsíða | Saklausum fórnað fyrir saklausa »
6. desember 2005
Áhyggjur Ástu
Hin ágæta þingkona Ásta Möller, lýsti í gær yfir áhyggjum á stærð Baugs á matvörumarkaði. Hún nefndi að fyrirtæki Baugs hefðu um 60% hlutdeild á markaðnum og væru því með einokunarstöðu. Hún spurði jafnframt hvort ekki væri ástæða fyrir íslendinga að hafa áhyggjur af stöðunni, sér í lagi vegna þess að í Bretlandi hefðu menn áhyggjur af aukinni markaðshlutdeild Tesco á markaðnum þar. En fyrirtækið er nú með yfir 30% markaðshlutdeild.
![]() „Tesco hefur einfaldlega staðið sig vel, og veitt neytendum þá vöru og þjónustu sem þeir vilja, á góðu verði.“ |
Það er ekki rétt hjá Ástu að hér ríki einokunarástand á matvörumarkaði. Markaðir eru opnir og öllum frjálst að fara í samkeppni við Baug. Baugur getur ekki hindrað neinn í því, þó að hann geti vissulega haft áhrif. Baugur hefur þessa stöðu á markaði sökum þess að neytendur kjósa að beina 60 prósentum viðskipta sinna til fyrirtækisins. En ekki má gleyma hinum 40 prósentunum. Neytendur hafa möguleika á að beina öllum sínum viðskiptum annað en til Baugs. Hér er því opinn markaður enn sem komið er, en ekki einokun.
Áhyggjur sumra Breta af Tesco eru að sama skapi óþarfar. Tesco hefur einfaldlega staðið sig vel, og veitt neytendum þá vöru og þjónustu sem þeir vilja, á góðu verði. Hætti Tesco að standa undir kröfum neytenda, eru þeir fljótir að fara annað með viðskipti sín. Tesco og Baugur geta ekki stýrt neytendum til langs tíma, með öðru en þjónustu og góðum vörum.
Ásta velti fyrir sér til hvaða aðgerða stjórnvöld ættu að grípa. Hvort við ættum að setja reglur um markaðshlutdeild og auka samkeppniseftirlit. En Ásta ætti að vita að engin þessarra úrræða mun bæta hag neytenda. Stjórnmálamenn með sínar eftirlitsstofnanir geta ekki fjölgað aðilum á markaði, eða breytt markaðshlutdeild fyrirtækja án þess að valda þeim fyrirtækjum stórfelldum skaða. Þeir geta allaf eyðilagt það skipulag sem komist hefur á á markaði, en þeir geta ekki skapað betra ástand.
Það er vond hugmynd að "skipta upp" fyrirtækjum með valdboði ríkisins. Að brjóta niður stoð sem samfélagið hefur komið sér upp með viðskiptum á markaði. Stjórnmálamönnum mun aldrei takast að skipuleggja markað með jafn hagkvæmum hætti og samfélagið sjálft. Útkoman verður alltaf kjaraskerðing fyrir almenning, hvort sem það eru sjálfstæðismenn eða sósíalistar sem beita ríkinu gegn markaðnum.
Eina ráðið í stöðunni er að halda áfram að bjóða upp á opna markaði, með skýrum og einföldum reglum sem breytast ekki eftir því hvaða fyrirtæki á í hlut. Þá getum við verið viss um að skipulag markaðarins breytist eftir þörfum á hverjum tíma. Fyrirtæki stækka og dragast saman. Ný koma inn á markaðinn og önnur hætta. Baugur verður ekki með 60% markaðshlutdeild að eilífu. Mér segir svo hugur að ástandið á markaðnum eigi eftir að breytast áður en svifaseinir stjórnmálamenn og embættismenn ná að rissa upp lög til að breyta því.
Sævar Guðmundsson kl. 07:01
