« Ábyrgð í efnahagsmálum | Aðalsíða | Jólagjöfin í ár er kapítalismi »

16. desember 2005

Afrískir sósíalistar

Um þessar mundir sitja fulltrúar frá flestum löndum heims í Hong Kong, á ráðstefnu Alþjóðaviðskiptamálastofnunarinnar, og reyna að ná samkomulagi um áframhaldandi frelsun og haftalosun í alþjóðahagkerfinu. Flestir leika þann leik að vera allir af vilja gerðir og boða afnám viðskiptahindrana og niðurgreiðslna, en kenna síðan öðrum um að vilja ekki taka fyrsta skrefið. Kapítalisma er haldið föngnum í pólitískum taflleik og líklega er best að stilla bjartsýni í hóf ef maður kallar sig mannvin og frjálshyggjumann.

En hverjum er í raun um að kenna? Eru það franskir bændur eða bandarískir iðnrekendur sem stöðva frelsisferlið? Svarið er hvorugt. Svarið er sósíalískir ráðamenn í sjálfum fátækustu löndunum. Ráðamenn þróunarlandanna eru þegnum sínum verstir. Þeir krefjast aðgangs að vestrænum mörkuðum en neita að fella niður eigin tolla og viðskiptahindranir. Alþjóðabankanum hefur reiknast til að ef Vesturlönd afnema alla sína tolla muni hagkerfi þróunarlandanna vaxa um u.þ.b. 31 milljarð dollara. Ef þróunarlöndin fella niður eigin hindranir við frjálsan markað geta þau átt von á fjórum sinnum stærri ávinningi.

Ekki er ætlunin að verja þvermóðsku evrópskra vinstrimanna. Hins vegar er e.t.v. rétt að byrja að þrýsta á afríska sósíalista að taka til í eigin garði í stað þess þeir eyði öllu púðri sínu í að gagnrýna umgengni annarra í sínum.

Birtist í DV í dag, föstudaginn 16. desember

Geir Ágústsson kl. 07:05