« Þjóðverjar búa sig undir heimsmeistarakeppni | Aðalsíða | Afrískir sósíalistar »

12. desember 2005

Ábyrgð í efnahagsmálum

Jón Baldvin Hannibalsson mætti í Silfur Egils á sunnudaginn, róttækari en nokkru sinni að eigin sögn. Í samtali sínu við Egil Helgason varpaði Jón Baldvin þeirri spurningu fram hvort Samfylkingunni væri treystandi í efnahagsmálum. Hann taldi svo vera, en hélt þó að hún þyrfti ef til vill að sanna sig betur hvað það varðar.

Á dögunum sýndi Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri og fulltrúi Samfylkingarinnar í R-listanum, áreiðanleika Samfylkingarinnar í verki. Hún hækkaði samdi um 25% hækkun taxtalauna við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

Eins og gefur að skilja vilja að aðrar stéttir ná fram sömu hækkun launa. Og er beinlínis kveðið á um að slíkt skuli gerast í mörgum samningum. Steinunn hefur vakið upp vandamál sem menn töldu sig vera búna að grafa. Launahækkanir á línuna sem eru ekki í neinum tengslum við raunverulegt svigrúm til launahækkana. Það er einfaldlega ekki hægt að hækka laun umfram það sem samfélagið framleiðir. Auðvita getur Steinunn hækkað krónutöluna endalaust, en það skilar sér bara í verðbólgu sem étur allt upp og kemur verst niður á þeim lægst launuðu.

Ef þetta er dæmi um það sem búast má við af Samfylkingunni í efnahagsstjórn er voðinn vís komist flokkurinn til valda. Tilraun Steinunnar Valdísar til að kaupa sér atkvæði gæti endað í stóru slysi fyrir þá sem lægst hafa launin.

Sævar Guðmundsson kl. 00:34