« Að njóta vafans | Aðalsíða | Hvað er skattur? »
4. nóvember 2005
Uppskeruhátíð kapítalismans
Fyrstu jólaauglýsingarnar eru byrjaðar að skjóta upp kollinum. Jólin nálgast óðfluga. Kristnir menn fagna fæðingu frelsara síns, heiðnir menn fagna senn hækkandi sól og aðrir fagna því einfaldlega að fá ástæðu til að gleðja sig og sína með gjöfum, mat, drykk eða einfaldlega félagsskap. Fólk hugleiðir heimsfrið, lætur fé af hendi rakna til þeirra sem eiga af einhverjum ástæðum erfitt með að brauðfæða sig eða leyfa sér munað í amstri dagsins, kveikir jólaljós í skammdeginu, fær sér göngutúr í miðbænum á Þorláksmessu eftir vel heppnaða skötu og segir börnum sínum frá Grýlu og Leppalúða og börnum þeirra þrettán. Í stuttu máli kveikja jólin gleði í hjörtum og minna okkur á þann efnislega, félagslega og andlega auð við njótum [í] okkar fámennu landi. Jólin minna okkur á að með ávöxtum frjálsra viðskipta og samskipta verður til svigrúm til að leyfa sér að láta lífið snúast um annað en brýnasta brauðstritið. Jólin gefa okkur tækifæri að fagna velgengni okkar á heimsmarkaðnum, að sýna heiminum hvað kapítalismi og frelsi hefur lyft áður fátækri þjóð hátt upp í lífsgæðum, að minna sósíalistana á galla hugmyndafræði sinnar og síðast en ekki síst: Að uppskera laun erfiðisins með vænni uppskeruhátíð – uppskeruhátíð kapítalismans – jólunum.
Birtist í DV í dag, 4. nóvember 2005
Geir Ágústsson kl. 08:10