« Hvað er skattur? | Aðalsíða | Atvinnuleysisbætur »
8. nóvember 2005
Limlestingar á kynfærum karla
Á Íslandi er ekki jafnrétti. Ekki af því að jafnrétti hafi ekki enn verið „náð“ heldur af því að enn í dag er verið að setja lög sem mismuna kynjunum og þar með fjarlægist draumsýnin um jafnan rétt allra óháð kynferði.
Sönnum jafnréttissinna ætti að vera umhugað um að vernda alla einstaklinga jafn mikið fyrir hvers kyns limlestingum áháð kynferði. Þó er einn aðili sem er þessu ósammála og er það enginn annar en Alþingi Íslendinga.
Þann 11. maí sl. samþykkti löggjafinn okkar allra þetta:
Hver sem með líkamsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns eða konu með því að fjarlægja kynfæri hennar að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt að [...] 16 árum.
Oddgeir Einarsson kl. 10:39