« Djúpstætt mein | Aðalsíða | Er skortur á reglum aðgerðaleysi? »
16. nóvember 2005
Jafnrétti sumra
Fyrir liggur frumvarp ríkisstjórnarinnar um réttarstöðu samkynhneigðra en þar kemur m.a. fram að þau njóti sömu réttinda varðandi almannatryggingar, lífeyrisréttindi, skattalega meðferð tekna og eigna, skipti dánarbúa o.fl.
Þeir sem ekki eiga sér lífsförunaut þurfa hinsvegar áfram að búa við þá mismunun og ójafnrétti sem ráðamenn hreykja sér nú af að losa tiltekna samkynhneigða einstaklinga undan.
Fjölskyldumynstur er einkamál fólks. Það á ekki að mismuna fólki, t.d. hvað skattheimtu varðar, á grundvelli fjölskylduforms. Skiptir þá engu hvort viðkomandi ákveður að verja tíma sínum með karlmönnum, kvenmönnum eða einn síns liðs.
Hvers vegna þarf ríkið t.d. að gera stöðu samkynhneigðs karls verri en ella ef hann finnur ekki maka? Hvaða rök búa að baki því að hann standi betur skattalega ef hann nær sér í karl en ef það heppnast ekki?
Oddgeir Einarsson kl. 13:19