« Uppskeruhátíð kapítalismans | Aðalsíða | Limlestingar á kynfærum karla »
7. nóvember 2005
Hvað er skattur?
Hvað er skattur? Skattur er eitt helsta tekjuöflunartæki ríkisvaldsins. Skattur á að nafninu til að standa undir útgjöldum vegna hinna ýmsu verkefna sem ríkið hefur tekið að sér og/eða búið til handa sjálfu sér. Skattur er upphæð sem ríkið innheimtir af einstaklingum sem hafa tekjur, eiga eignir, deyja, selja eða kaupa. Skattur er upphæð sem fyrirtæki eru látin borga ef þau skila hagnaði af rekstri sínum. Upphæðin getur verið föst eða hlutfall af einhverjum skattstofni.
En skattur er ekki bara þetta. Skattur er líka stjórntæki. Skattar eru notaðir til að stjórna einstaklingum og þá bæði í þeirra daglega lífi í þeirra daglegu breytni og þegar kemur að því að taka ákvarðanir fyrir rekstur fyrirtækja. Stjórnmálamenn nota skatta til að refsa sumum einstaklingum og verðlauna aðra. Skattar eru notaðir til að halda háværustu þrýstihópunum þögulum. Skattar eru notaðir til að hafa áhrif á ákvarðanir sem eru sumum að skapi en öðrum ekki, jafnvel ákvörðunum sem í eðli sínu varða engan nema þá sem þær taka. Skattar eru notaðir til að þrýsta viðmiðunum og gildum ákveðins hóps einstaklinga ofan í kokið á öllum öðrum. Skattar eru stjórntæki.
Af þessum ástæðum eru skattalækkanir ekki spurning um krónur og aura, og að tíma og hafa efni á. Skattalækkanir eru réttlætismál sem snúast um að minnka tangarhald stjórnmála- og embættismanna á frjálsum borgurum og frjálsum fyrirtækjum þeirra. Skattahækkanir eða viðvarandi innheimta hárra skatta er forræðishyggja. Eftir því sem skattar lækka minna, því meiri er ríkjandi forræðishyggja. Eftir því sem skattar lækka meira og hraðar, því sterkara er frjálsræðis- og umburðarlyndisviðhorfið hjá ríkjandi yfirvöldum.
Geir Ágústsson kl. 14:47