« Jafnrétti sumra | Aðalsíða | Frjálsir Sjálfstæðismenn »
18. nóvember 2005
Er skortur á reglum aðgerðaleysi?
Umhverfismál eru ofarlega í huga margra. Óteljandi samtök þeirra sem kalla sjálfa sig umhverfisverndarsinna berjast fyrir því að Vesturlönd dragi úr eldsneytisnotkun sinni. "Worst case scenario" segir að ef við hættum ekki að brenna olíu og kolum þá sitjum við eftir með tómar olíulindir og loftslag mörgum gráðum heitara en það sem við eigum að venjast í dag. Er skynsamlegt að gera ekkert ef verstu spádómar eiga það á hættu að rætast?
Svarið er bæði já og nei. Það er skynsamlegt að halda aftur af sér þegar kemur að því að þvinga ákveðna orkunotkun eða skerðingu hennar upp á fyrirtæki og einstaklinga. Það er gríðarlega óskynsamlegt að semja lög og reglur sem grafa undan hagvexti og auðsköpun á heimsmælikvarða. "Richer is cleaner" er nokkuð sem má gjarnan hafa í huga í því samhengi.
Hitt er einnig ljóst að skortur á lögum og reglum er ekki eitt og hið sama og að vera aðgerðarlaus og sýna óvarfærni. Tækniþróun í frjálsum markaðssamfélögum hefur og mun halda áfram að skapa vélar og tæki sem gera meira og meira fyrir minni og minni orku. Ef í ljós kemur að olíubirgðir jarðar eru að fjara út mun verð á olíu hækka og um leið skapast svigrúm fyrir dýrari tæki og tól sem annaðhvort nota minni olíu eða aðra orkugjafa sem ekki eru samkeppnishæfir við olíu í dag þegar við eigum nóg af henni.
Boð og bönn eyðileggja þennan undramátt hins frjálsa markaðar. Af hverju að láta bannið njóta vafans þegar bannið er vafasamt?
Geir Ágústsson kl. 13:48