« Limlestingar á kynfærum karla | Aðalsíða | Vinstrimenn eru samir við sig »
9. nóvember 2005
Atvinnuleysisbætur
Það hljómar skringilega að samtök alþýðu vilji tekjutengja atvinnuleysisbætur.
Hver er tilgangur félagslega kerfisins? Að hjálpa þeim sem þurfa hjálp. Að tryggja öllum einhver gæði. Afleiðing af þessu er að ekki þurfi að hjálpa þeim sem ekki þurfa hjálp. Samt sem áður er það núna eitt markmiða ASÍ að hjálpa þeim sem ekki þurfa þess með.
Þeim rökum, að tekjumeiri hafi reist sér hurðarás um öxl með skuldbindingum við kaup á bíl eða húsnæði, hlýtur að hafna. Ábyrgðin á því að hafa borð fyrir báru er þessa fólks. Tekjuháa fólkið ætti að hafa haft vit á því að hugsa þetta fyrir og möguleika á að gera eitthvað í því. Auk þess eru líkur á að hálaunafólk sé mjög hæft til einhverra starfa og það ætti því auðveldara með að finna sér nýja vinnu og geta út á þann möguleika tekið lán lokist öll önnur sund.
Ég tel raunar að veigamikil rök megi færa fyrir því að atvinnuleysisbætur lækki með auknum tekjum.
Gylfi Ólafsson kl. 18:21