« Fjöldamorðingjadýrkunin | Aðalsíða | Verkefnalausi stjórnmálamaðurinn »
27. nóvember 2005
Af vestrænum áhrifum
Víða um hinn vestræna heim mótmæla ungmenni alþjóðavæðingunni svokölluðu. Alþjóðavæðingunni fylgja auknir valmöguleikar sem oft verða til með auknu valfrelsi. Vesturlandabúum er frjálst að gera ýmsa hluti þrátt fyrir að öðrum þyki þeir heimskulegir, ósiðlegir eða jafnvel skaðlegir viðkomandi. Maður getur t.d. lagt líf sitt í hættu við að klifra upp á fjall, þegið illa launað og erfitt starf, kysst einhvern af sama kyni úti á götu eða fengið sér óhollan hamborgara. Þetta eru þó aðeins valkostir og hinn valfrjálsi getur alltaf valið aðra valkosti ef hann metur þá betri.
Alþjóðavæðingin felur það í sér að möguleikar opnast fólki sem það hafði ekki áður eða kom hreinlega ekki auga á áður. Víða um heim býðst fólki nú að þiggja störf sem það sjálft telur bæta líf sitt frá því sem áður var. Víða um heim velur fólk að fá sér óhollan hamborgara að loknum vinnudegi frekar en eitthvað þjóðlegt. Víða um heim takast ástir með fólki af sama kyni þrátt fyrir andstöðu samfélagsins við því.
Í Fréttablaðinu í dag er fjalla um hóp samkynhneigðra karlmanna í Dubai, höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þeir eiga yfir höfði sér hormónameðferð, fimm ára fangelsisvist og hýðingu fyrir athæfi sitt. Samkynhneigð hegðun á almannafæri er bönnuð samkvæmt lögum landsins. Í fréttinni segir síðan:
Yfirvöld í landinu óttast að að fjöldabrúðkaup samkynhneigðra séu orsök aukinna vestrænna áhrifa í landinu og reyna þau nú allt til að stöðva þessa þróun.
Það þykir almennt ekki sexý pólitískt séð að vera á móti samkynhneigð í hinum vestræna heimi. Það er gott. Mótmælendur alþjóðavæðingunnar munu því væntanlega ekki stunda skemmdarverk á kirkjum samkynhneigðra víða um heim eins og tíðkast að gera við sölustaði McDonald's. Hér er þó í báðum tilvikum um að ræða hið sama; Samkomustaði þeirra sem hafa valið tiltekna hegðun sem er að margra mati óæskileg og er tilkominn vegna áhrifa vestrænnar menningar.
Mótmælendur alþjóðavæðingarinnar viðurkenna nefnilega bara valfrelsi fólks til að gera það sem þeim, mótmælendunum, þykir við hæfi.
Oddgeir Einarsson kl. 12:18