« Hænuskref í frelsisátt | Aðalsíða | Mildari Sjálfstæðisflokkur hvað? »

18. október 2005

Vald stjórnmálamannsins er hættulegt

Er einhver eftir á Íslandi í dag sem efast um hættuna sem felst í því að leyfa stjórnmálamönnum að ráða of miklu? Sagan endalausa, Baugsmálið, ætti að hafa sýnt og sannað að skriffinnar hins opinbera geta farið sínu ansi frjálslega fram ef þeim dettur það í hug. Einn skriffinni á skrifstofu ráðuneytis hefur völd til að knésetja hvaða viðskiptamann sem er ef hann nær að matreiða meiningu sína nægilega vel ofan í þingheim á Alþingi. Einn ráðherra hefur völd til að siga heilli fylkingu opinberra embættismanna á hvern þann mann í samfélaginu sem stígur á vitlausar tær. Engin slík völd þekkjast í viðskiptaheiminum. Þar geta menn í mesta lagi rekið og ráðið, hækkað laun og verð eða lækkað, og vonað að starfsmenn, neytendur og fjárfestar verði ekki ósáttir.

Vinstrimenn eru duglegir við að stinga upp á nýjum verkefnum fyrir stjórnmálamenn. Stofnanir á samkeppnissviði, jafnréttissviði og ríkisrekinnar heilsuverndar eru tæki sem stjórnmálamenn geta notað til að knýja samfélagið í ákveðna átt. Öll mótstaða er til lítils þegar fangelsi er eini valkosturinn við ákvörðun stjórnmálamannsins. Er ekki ráð að nýta nýfengna reynslu af Baugsmálinu og þrýsta á um auknar einkavæðingar og fækkun opinberra stofnana?

Birtist áður í DV 14. október 2005.

Geir Ágústsson kl. 08:47