« Mildari Sjálfstæðisflokkur hvað? | Aðalsíða | Vinstri og hægri; umhverfið og hagsældin »
23. október 2005
Staðleysumartröðin
Í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Foreign Policy fjallar William Easterly um þróunaraðstoð. William bendir á að endalaust tal um auðveld meðöl gegn erfiðum sjúkdómum þróunarlanda (utopianism eins og William kallar það) geri fólki í þessum löndum raunar erfiðara fyrir og tefji þróun. Með því að lofa meiru en mögulegt eða líklegt er að hægt sé að standa við, er litið framhjá grundvallaratriðum þróunar. Í greininni er útlistað hvernig hugmyndir, meðal annarra hagfræðingsins Jeffrey Sachs um fjölþættar aðgerðir ríkisstjórna og alþjóðastofnanna, séu dæmdar til að mistakast og gera jafnvel meira ógagn en gagn.
Greinin er hluti af 35 ára afmælisriti blaðsins. Foreign Policy er ekki selt í lausasölu á Íslandi en er eitt þeirra sem hægt er að lesa endurgjaldslaust í gegnum landsaðgang hvar.is. Tímaritið er mjög áhugavert og má af öðru efni þess nefna til dæmis stutta grein siðfræðingsins Peter Singer um siðfræði lífs og dauða, en Singer þessi hefur hresst verulega upp á staðnaða pólitíska rétthugsun sem plagað hefur tal um þennan kima siðfræði.
Foreign Policy má sækja hingað. Hér er grein Williams Easterly og hér grein Peters Singers.
Gylfi Ólafsson kl. 14:03