« Merkel nýr kanslari | Aðalsíða | Hænuskref í frelsisátt »
12. október 2005
Risi fæðist
Risi er e.t.v. að fæðast á íslenskum samlokumarkaði. Frétt um málið:
Eitt fyrirtæki verður með 95% prósenta markaðshlutdeild á samlokumarkaði ef áform stjórnenda Sóma á að kaupa Júmbó samlokur ganga eftir.Þetta gætu e.t.v. hljómað eins og ógnvænleg tíðindi fyrir nútímalega jafnaðarmenn. Í eyrum sumra er nefninlega nóg að heyra háar prósentutölur til að finna fyrir þörfinni til að bregðast við, t.d. með ríkisafskiptum. Sem betur fer sleppur íslenskur samlokumarkaður þó að þessu sinni:
Sameiningin kemur þó ekki til kasta samkeppnisyfirvalda þar sem heildarvelta fyrirtækjanna er um sjö hundruð milljónir á ári, veltan þarf að vera milljarður til að samkeppnisyfirvöld hafi eitthvað um sameininguna að segja.Þá vitum við það. Ákveðin krónutala réttlætir ríkisafskiptin. Fyrir þessu eru auðvitað engin rök. Markaði stafar hvorki meiri né minni hætta af hárri markaðshlutdeild eins fyrirtækis eftir því sem heildarvelta markaðarins breytist, og hvort hún er milljarður eða milljón.
Samkeppnisyfirvöld eru geymslustöðvar fyrir lögfræðinga sem hafa ekki sóst eftir því að reka fyrirtæki með notkun frjálsra samninga, heldur með notkun framkvæmdarvaldsins. Samlokuunnendur eru fullfærir um að meta áhrif sameiningar Sóma og Júmbó án aðstoðar þeirra.
Geir Ágústsson kl. 10:10