« Heyrst hefur... | Aðalsíða | Fíkniefni og framtíðin »

27. október 2005

Norðurlandaráð

Skattgreiðandi góður, hvað gerir Norðurlandaráð við peningana þína sem gagnast þér eða þínum? Svarið er: Ekkert. Þess vegna á að leggja ráðið niður í þeirri mynd sem það er í dag eins og sænska stórblaðið Dagens Nyheder leggur til.

Samfylkingarkonan Rannveig Guðmundsdóttir lýsti því nýverið yfir að alls ekki mætti draga úr ríkisstyrkjum til Norræns samstarfs. Rannveig hefur setið í stjórn Norræna menningarmálasjóðsins frá 1999, í Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1991-1994, 1997-1999 og nú síðast frá 2001, auk þess að vera forseti Norðurlandaráðs síðan 2004.

Ég veit ekki til þess að Rannveig hafi gegnt þessum störfum án endurgjalds og kann það að skýra baráttu hennar fyrir áframhaldandi yfirfærslu úr vösum skattgreiðenda í vasa hennar.

Oddgeir Einarsson kl. 13:09