« Vald stjórnmálamannsins er hættulegt | Aðalsíða | Staðleysumartröðin »

18. október 2005

Mildari Sjálfstæðisflokkur hvað?

Það er fyndið að fylgjast með ummælum spekúlanta í fjölmiðlum um breytingarnar í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar þess að Geir H. Haarde er tekinn við af Davíð Oddssyni sem formaður flokksins.

Iðulega, t.d. í leiðurum dagblaða og sjónvarpsfréttum síðustu daga, heyrist að breytingarnar boði mildari stefnu flokksins. Uppgefnar ástæðurnar eru ekki skapgerðareinkenni einstaklinganna sem gegna formennsku heldur að hann færist nær miðju þrátt fyrir að vera enn hægriflokkur.

Er það mildari stefna að auka afskipti ríkisins af lífi saklauss fólks? Nei, mildari stefna er sú sem gengur út á að fólk fái að vera í friði svo lengi sem það gerir ekki öðrum mein. Mildari stefna er frjálshyggjustefnan. Það, að Sjálfstæðisflokkurinn færist til vinstri þýðir að hann færist enn fjær frjálshyggjunni. Ef svo er raunin er aukin harka hlaupin í Sjálfstæðisflokkinn.

Oddgeir Einarsson kl. 08:57