« Mannanafnanefnd | Aðalsíða | Til umhugsunar »
8. október 2005
Engin þörf á neinum fjölmiðlalögum
Er einhver þörf á sérstökum lögum um fjölmiðla, efnistök þeirra, eignarhald eða samkeppnisumhverfi? Svarið, af mörgum ástæðum, er nei. Í fyrsta lagi vita eigendur og starfsmenn fjölmiðla miklu meira um rekstur fjölmiðla en stjórnmálamenn og útsendarar þeirra. Til lítils er fyrir yfirvöld að reyna handstýra umræðunni með því að banna sumum en ekki öðrum að eiga hitt en ekki þetta, og þar að auki er slíkt með öllu óréttlætanlegt. Í öðru lagi er fjölmiðlaumhverfi á Íslandi bæði fjölbreytt og virkt og engar blikur á lofti um að það sé að breytast. Í þriðja lagi er rekstur fjölmiðlafyrirtækja í litlu frábrugðinn öðrum fyrirtækjarekstri sem enginn hefur enn talað um að setja sérstök lög á. Í fjórða lagi er auðvelt að sjá að umfjallanir mismunandi fjölmiðla um mismunandi málefni litast [af] skoðunum þeirra sem þær skrifa, hvort sem því er neitað eða ekki, og þó ekki væri af annarri ástæðu en þeirri að fréttamenn eru þátttakendur í umræðunni í samfélaginu.
Um þessar mundir keppast stjórnmálamenn og skríbentar við að stinga upp á hinum og þessum útgáfum af fjölmiðlalögum. Allir hafa rangt fyrir sér í þeirri keppni, því þörfin á fjölmiðlalögum er ekki til staðar.
Birtist áður í DV þann 7. október
Geir Ágústsson kl. 09:37