« Vinstri og hægri; umhverfið og hagsældin | Aðalsíða | Afnám stjórnarskrár Íslands »
24. október 2005
Dagur pólitískrar rétthugsunar
Í tilefni þess að dagur pólitískrar rétthugsunar er loksins runninn upp langar mig að leggja eitt aumt orð í belg. Hafið þó engar áhyggjur lesendur góðir, því þið munuð ekki verða vör við þetta sjónarmið í fjölmiðlum frekar en undanfarna daga. Þið munuð áfram heyra að á vinnumarkaði séu framin mannréttindabrot á konum og að þeim sé almennt mismunað vegna kynferðis.
Það sem ég ætlaði að benda á var að það gilda nákvæmlega sömu reglur um karla og konur hvað varðar tækifæri til menntunar, að stofna fyrirtæki og til að kjósa og bjóða sig fram í stjórnmálum. Þá hafa karlar og konur sama rétt til að gera miklar kröfur um laun á vinnumarkaði.
En já, mannréttindabrot var það víst. Höfum hátt.
Oddgeir Einarsson kl. 01:32