« Dagur pólitískrar rétthugsunar | Aðalsíða | Hvað er samfélagsþjónusta? »
24. október 2005
Afnám stjórnarskrár Íslands
Á heimasíðu Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins má nú lesa eftirfarandi frétt:
Drög að frumvarpi um bann við reykingum verður lagt fyrir þingflokka stjórnarflokkannaHvaða afleiðingar mun frumvarp af þessu tagi hafa í för með sér?Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að leggja fyrir þingflokka stjórnarflokkanna frumvarp til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir. Breytingin lýtur að því að ákvæði núgildandi tóbaksvarnarlaga sem heimila reykingar á afmörkuðum svæðum veitinga- og skemmtistaða verði afnumið og reykingar í þjónusturými veitinga- og skemmtistaða verði bannaðar með öllu frá 1. júní 2007. Meginmarkmið frumvarpsins er vinnuvernd starfsmanna og vernd almennings, enda liggja fyrir fjölmargar vísindalegar rannsóknir sem sýna að óbeinar reykingar valda heilsutjóni og dauðsföllum. (#)
Ef Alþingi samþykkir lög sem banna reykingar á skemmti- og veitingastöðum hefur eftirfarandi upptalning orðið að veruleika:
Athafnafrelsi stjórnarskrárinnar er í raun orðin tóm. Lögleg athöfn, reykingar, er nú ekki lengur samkomulagsatriði frjálsra einstaklinga. Ef einstaklingur fremur hina löglegu athöfn, reykingar, á vitlausum stað á vitlausum tíma, en með fullu samþykki allra í kringum hann og inn á eign með fullu samþykki eigandans, þá getur viðkomandi samt átt yfir höfði sér refsingu frá ríkisvaldinu. Athafnafrelsi hans er horfið.
Eignarrétturinn sem stjórnarskráin fjallar um er horfinn. Einstaklingur sem á húseign og fær náðasamlegast leyfi til að selja mat og eitthvað að drekka hefur í raun fyrirgert sér eignarréttinum. Nú má húseigandinn ekki lengur gera samning um löglega athöfn við þá sem vilja njóta eldamennsku hans eða drykkjarvara. Ef húseigandinn gerir slíkan samning um löglegar athafnir, en leyfir ákveðna gerð löglegrar iðju - reykingar - þá getur hann átt von á heimsókn frá ríkisvaldinu, og refsingu í leiðinni.
Sjálfseignarréttur einstaklingsins á eigin líkama hefur reyndar ekki verið mjög virtur réttur á Íslandi í langan, langan tíma, en með því að banna frjálsum einstaklingum að stunda löglega iðju ef þeir eru staddir á ákveðnum fermetrum er síðasti snefill sjálfseignarréttsins þurrkaður í burtu. Ríkið ræður hvað þú gerir við líkama þinn ef þú villist inn á ákveðnar eignir frjálsra einstaklinga, sem þó hafa samþykkt veru þína þar og iðkun þína á meðan hún er ofbeldislaus.
Á hvaða altari á svo að fórna helstu ákvæðum stjórnarskrár okkar? Altari lýðheislu var það. Af því frjálsir einstaklingar tóku að sér störf af fúsum og frjálsum vilja á frjálsum markaði, með öllum þeim kostum og göllum sem þeim fylgdu, og urðu fyrir skaða yfir lengri tíma óholla líkamsbeitingu, að þá á að senda stjórnarskrárbundin réttindi Íslendinga í ruslatunnuna. Nú er ljóst að ríkisvaldið er ekki bundið af neinum ákvæðum, og að öllu megi troða ofan í nauðugt kokið á Íslendingum ef matreiðslan er rétt.
Geir Ágústsson kl. 17:35