« Efnahagslegt frelsi | Aðalsíða | Blár ópal »

16. september 2005

Þvæla

Stundum segja vinstrimenn að þeir viti alveg að opinberar stofnanir fari ekkert sérstaklega vel með fjármuni almennings. Það sé þó ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir það mikilvæga samfélagslega hlutverk sem hið opinbera hefur með höndum.

Svo keyrir þvælan yfir þverbak. Nú á að eyða um milljarði króna í aðstöðu við Laugardalsvöllinn.

Hversu mikinn fórnarkostnað á að sætta sig við fyrir mikilvæga samfélagslega hlutverkið sem hið opinbera á að sjá um?

Gylfi Ólafsson kl. 09:46