« Peningahyggja sósíalista | Aðalsíða | Hörmungar kommúnismans »

2. september 2005

Vinstrimenn: Lífið snýst um meira en peninga

Vinstrimenn þurfa að átta sig á því að lífið snýst um annað og meira en peninga. Auðvitað vilja allir hafa í sig og á og geta unnið fyrir sér og skroppið í frí öðru hverju. Vinstrimenn vilja hins vegar mæla samfélagið með annarri mælistiku en þeirri sem flestir einstaklingar nota á sjálfa sig. Vinstrimenn segja að fullorðinn, sjálfstæður og vinnandi einstaklingur eigi ekki að láta sér nægja það sem hann hefur eða stefnir að. Vinstrimaðurinn vill stilla öllum upp við hlið þeirra allraríkustu og fullyrða að munurinn á milli launa þess fátækasta og þess ríkasta sé það eina sem skiptir máli. Sjálf lífsgæðin sem báðir búa við gilda einu, og þaðan af síður hafa vinstrimenn áhuga á að heyra að einhver sé nægjusamur og vilji bara fá að lifa sínu lífi án eilífra afskipta hins opinbera.

Frelsi hefur frá því löngu fyrir daga sósíalismans verið eitt eftirsóknarverðasta markmið manna um víða veröld. Til hvers í ósköpunum að skerða frelsi allra manna til að fá í staðinn einhverja peninga sem flytja mann nær þeim allraríkustu í hverju samfélagi? Er þess virði að mæla samfélagið á slíkri mælistiku og fyrir slíkan fórnarkostnað?

Geir Ágústsson kl. 10:43