« Frjálshyggjufélagið hefur nýtt starfsár | Aðalsíða | Hrós »

7. september 2005

Sundmaður dæmdur til óheilbrigðara lífernis

Lítið fór fyrir frétt fyrir skömmu um að piltur nokkur sem æfir sund hafi verið staðinn að því að hafa einhver efni í líkama sínum sem eru íþróttayfirvöldum ekki þóknanleg. Var hann dæmdur í tveggja ára keppnisbann fyrir vikið. Gott og vel.

Það eru kannski rök fyrir því að þeir sem keppi saman í sundi megi bara borða það sem yfirvöld ákveða. En pilturinn var ekki bara dæmdur í keppnisbann heldur var honum einnig banna að æfa sig í tvö ár. Sem sagt bannað að synda.

Ég hef heyrt marga hrópa „mannréttindabrot“ af mun minna tilefni. Hvernig getur einhver íþróttadómstóll ákveðið að einhver megi ekki æfa líkamann með sundi? Kannski á viðkomandi einundis vini sem hann hittir í lauginni. Nei, það nægir ekki að útiloka hann frá keppni, látum hann sitja einan heima að fyrir framan sjónvarpið. Þetta er óskiljanlegt og ég fullyrði að dómurinn sé ólögmætur að efni til. Þessi íþróttadómstóll (eða hver sem það var) hefur engar heimildir til að svipta menn frelsi til heilsusamlegs lífernis.

Ef yfirvarpið er það að koma í veg fyrir að menn geti hagnast á neyslu bannaðra efna, með því að tryggja það að viðkomandi komi ekki sterkur inn í keppni eftir að hafa hugsað sinn gang í tvö ár og æft, hefði verið unnt að lengja keppnisbannið og sleppa æfingabanninu.

Keppnin er nefnilega mjög lítill hluti af lífi íþróttamanna en æfingin er oft mikilvægasti hluti lífsins.

Ég ætla að leyfa mér hið fágæta og hrópa: „Mannréttindabrot“

Oddgeir Einarsson kl. 23:21