« Hörmungar kommúnismans | Aðalsíða | Frjálshyggjufélagið hefur nýtt starfsár »

2. september 2005

Sjálfstæðisflokkurinn

Hörmungar kommúnismans dyljast fáum. Sósíalisminn byggir á sama grunni að því leiti að hann er reistur á þeirri hugmyndafræði að réttlætanlegt sé að taka hluta af ævi sumra til að afla fjármuna í verkefni fyrir annað fólk. Oftast beinist gagnrýni frjálshyggjumanna að yfirlýstum vinstrimönnum. Fáir vita hins vegar að Sjálfstæðisflokkurinn tekur að hluta til undir nákvæmlega þessi sömu sjónarmið eins og fræðast má um á kosningavef Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is, sbr. eftirfarandi:

Þannig er eðlilegt, að hið opinbera hafi með höndum rekstur, sem samkvæmt eðli sínu leiðir til einokunar. Þarna er þó margt takmarka tilvikið, sem huga þarf nákvæmlega að. Eins kemur til greina, að ríkisvaldið komi til skjalanna þar sem bolmagn einstaklinganna til framkvæmda og reksturs er ekki nægjanlegt eitt sér vegna stærðar verkefnisins.

Ekki efa ég að vinstrimenn telji þetta allt gott og blessað. Þarna gefa sjálfstæðismenn sér margar forsendur sem sumar eiga ekki við rök að styðjast. Forsendurnar eru þessar:

1) Til er rekstur sem eðli sínu samkvæmt leiðir til einokunar.
2) Eðlilegt er að hið opinbera komi á einokun sinni í slíkum tilfellum.
3) Til eru verkefni sem einungis ríkið ræður við vegna stærðar þeirra.
4) Eðlilegt getur verið að ríkið taki að sér verkefni sem ríkisstarfsmenn telja engan annan ráða við.

Oddgeir Einarsson kl. 18:05