« Utanríkisþjónusta sósíalistanna | Aðalsíða | Að gera Jesús úr manni »
28. september 2005
Hvað ef?
Hvað ef allir væru jafnir? Nei, ekki jafnir gagnvart lögunum eins og við erum flest sem búum í frjálsum kapítalískum ríkjum, heldur jafnir í fjárhagslegu og stöðulegu tilliti. Allir hefðu jafnmikið fé á milli handanna, allir gætu unnið öll störf án þess að líða betur eða verr en í öðrum störfum og allir nytu sömu stöðu í augum allra. Er þetta falleg draumsýn sem er vert að hugleiða? Er þetta falleg draumsýn sem fellur um græðgi og eigingirni einstaklingseðlis okkar? Er þetta draumsýn sem gengi upp ef einstaklingar væru betur innrættir, gjafmildari og óeigingjarnari?
Nei, þetta er martröð. Þetta er sú hugsun að einstaklingurinn sé ekkert en samfélagið sé allt. Þetta er sú ósk að allir einstaklingar hafi samskonar greind, hæfileika, áhugamál, metnað, langanir, hugsanir, fordóma, nautnir, nennu, getu og hvatir. Þetta er sú hugsun að einstaklingurinn hverfi, að fjölbreytt samfélag einstaklinga víki fyrir samfélaginu sem slíku og að í staðinn komi her fjöldaframleiddra vefjasekkja. Þetta er martröð.
Geir Ágústsson kl. 09:18