« Sundmaður dæmdur til óheilbrigðara lífernis | Aðalsíða | Skattaafslættir »
8. september 2005
Hrós
Hrósið að þessu sinni fær stór hópur Íslendinga af báðum kynjum og á öllum aldri sem hefur rifið sig upp úr kyrrstöðunni og ákveðið að skella sér aftur á skólabekk eftir mislangt hlé frá námi. Háskólaumhverfi Íslands hefur á síðustu árum geta skapað bæði meiri eftirspurn og meira framboð eftir fjölbreyttara og viðameira háskólanámi en áður hefur þekkst á Íslandi. Þúsundir Íslendinga hafa nýtt sér tækifærið og skellt sér í skóla og lokið menntun og slíkt hefði aldrei verið mögulegt ef ekki væri fyrir öfluga íslenska háskóla. Einstæðar mæður, fólk sem áður hafði gefist upp á Háskóla Íslands, bankastarfsmenn og kerfisstjórar eru eingöngu nokkur dæmi um þá sem undirritaður þekkir persónulega sem hafa drifið sig í skóla eða ætla drífa sig í skóla til að klára það sem áður fékkst ekki klárað.
Ástæður þess að íslenskt háskólasamfélag er nú orðið jafnfjölbreytt, öflugt og aðlaðandi og raunin er er auðvitað augljós: Einkaframtakið hefur fengið svigrúm til að sýna mátt sinn og til að búa til góða vöru í miklu magni á verði sem margir eru tilbúnir að greiða. Vonandi gefst fleirum en háskólanemum kostur að upplifa eitthvað svipað í náinni framtíð. Sjúklingar, framhaldsskólanemar, bændur og listamenn eru þar efnilegir kandídatar.
Þessi orð má einnig finna í DV í dag, 8. september.
Geir Ágústsson kl. 13:57