« Vinstrimenn: Lífið snýst um meira en peninga | Aðalsíða | Sjálfstæðisflokkurinn »

2. september 2005

Hörmungar kommúnismans

Í nýlegri grein á Múrnum er fjallað um ófremdarástandið sem ríkir í fyrrum Sovét-ríkinu Úsbekistan undir stjórn kommúnistans Islams Karimovs. Umfjöllun Múrsins er okkur á Vesturlöndum holl áminning um þær hörmungar sem sameignarstefna og ríkisforráð geta haft í för með sér. Á meðan sameignarríkjum tekst að framkalla hungursneyðir í einhverjum frjósömustu héröðum heims hefur slíkt ástand aldrei í sögunni átt sér stað í frjálsu, kapítalísku ríki. Aldrei! Að sama skapi eru borgarastríð, fjöldamorð, aftökur án dóms og laga og gjörspilltir stjórnmálamenn daglegt brauð þar sem ríkið afneitar einstaklingseðlinu (enda einstaklingseðli álitið slæmt og óeftirsóknarvert af sósíalískum hugsuðum).

Geir Ágústsson kl. 13:19