« Af jafnrétti | Aðalsíða | Efnahagslegt frelsi »
13. september 2005
Hægrimenn tapa völdum í Noregi
Norðmenn felldu hægri-miðjumeirihlutann á norska þinginu í kosningum í gær. Í staðinn fékk víðfeðm flóra vinstriflokka samanlagt meirihluta þingsætanna og nú á að reyna mynda kosningabandalag. Ólíkt hægrimönnum þá leggja vinstrimenn allajafna mesta áherslu á að flytja sem stærstar fjárhæðir frá einum vasa í annan og hugsa lítið um hræðilegar samfélags- og efnahagslegar afleiðingar þess. Vinstrimenn hafa ekki hugmynd um af hverju hægrimönnum gengur svona vel að reka hagkerfi, en hafa þeim mun fleiri hugmyndir um hvernig á að dreifa auðinum sem skapast undir stjórn hægrimanna. Gildir þá einu hvort auðurinn hverfi fyrir vikið eða ekki. Honum skal dreifa meðan hann endist.
Vinstriflokkar Noregs standa samt frammi fyrir vandamáli: Þegar hið eina sem er hægt að sameinast um er að ná völdum og eyða peningum þá verða til ágreiningsefni. R-listi Reykjavíkur sundraðist því ekki var hægt að ná samkomulagi um skiptingu valdastóla. Norsku vinstriflokkarnir standa sundraðir þegar kemur að eyðslu peninganna.
Dagblaðið Aftenposten í Noregi gerir málinu ágætlega skil: Sumir flokkanna leggja áherslu á að eyða olíuauðnum í neyslu, aðrir vilja skattleggja þá sem mestan auðinn skapa, enn aðrir vilja að Noregur gangi í Evrópusambandið, gömlu kommarnir berjast fyrir minnkandi einkaframtaki, t.d. í skólakerfinu, og svona má lengi telja. Fróðlegt verður að sjá hvernig fer þegar vinstrimenn setjast niður og ræða hinar ýmsu þjóðnýtingarhugmyndir sínar.
Ráð undirritaðs til norskra vinstrimanna er samt einfalt: Sameinist bara um að eyða peningum, eyðileggja hagkerfið og rýma brautina fyrir hægrimenn svo þeir geti enn og aftur bjargað því sem bjarga má eftir næstu kosningar.
Geir Ágústsson kl. 10:32