« Þvæla | Aðalsíða | Öfgastefnan frjálshyggja »
18. september 2005
Blár ópal
Nýverið tilkynnti Nói-Síríus að fyrirtækið hefði hætt framleiðslu blás Ópals. Í tilkynningunni segir að ekki sé grundvöllur fyrir framleiðslunni eftir að hætt var að framleiða mikilvægasta bragðefnið.
Þetta þykir mér jafn vont eins og blár ópal er góður. Mér finnst blár ópal vera eitt merkilegasta og besta sælgæti sem framleitt hefur verið hér á landi. Ég tel menningarsögulegt gildi framleiðslunnar ótvírætt. Gott ef ekki listrænt líka.
Ríkisvaldið verður auðvitað að koma til hjálpar og styrkja þessa framleiðslu. Myndarlega.
Við getum nefnilega ekki látið óbeislaðan markaðinn ráða för í þróun samfélagsins. Reynum að hægja á eða jafnvel stöðva alla þróun og nýbreytni.
Og svo vil ég fá prinspólóið mitt aftur með fúkka bragði í álpappír. Þar sofnaði ríkið svo sannarlega á verðinum.
Og svo vil ég auðvitað áfram Þjóðleikhúsið, Dansflokkinn, Sinfóníuhljómsveitina og Tilfinningatorgið. Ríkið verður að halda vöku þar.
Oddgeir Einarsson kl. 17:20